Komust yfir án þess að snerta boltann (myndskeið)

Fótbolti.
Fótbolti.

Alisson Cassiano, leikmaður karlaliðs brasilíska knattspyrnufélagsins Sport Recife, skoraði ansi neyðarlegt sjálfsmark í leik liðsins gegn Novorizontino í B-deildinni þar í landi í síðasta mánuði.

Sport Recife byrjaði með boltann í leiknum og hélt honum innan liðsins um stund.

Það fór ekki betur en svo að Cassiano renndi boltanum í eigið net eftir aðeins 18 sekúndna leik.

Þar með var Novorizontino búið að ná forystunni án þess að svo mikið sem einn leikmaður liðsins væri búinn að snerta boltann í leiknum.

Leiknum lauk með 2:1-sigri Novorizontinon en myndskeið af þessu ótrúlega sjálfsmarki má sjá hér:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert