Stjörnuleikmaður Brasilíu í banni í átta liða úrslitum

Vinicius Junior verður í banni í átta liða úrslitum.
Vinicius Junior verður í banni í átta liða úrslitum. AFP/Philippe Marcou

Í nótt kláruðust síðustu leikir í riðlakeppninni í Ameríkubikar karla í fótbolta og næst eru átta liða úrslit. Vinícius Jr, lykilleikmaður Brasilíu fékk sitt annað gula spjald og verður í banni í næsta leik.

Brasilía og Kólumbía gerðu 1:1 jafntefli í fyrri leiknum í D-riðli í nótt. Kólumbía vann riðilinn og mætir Panama í átta liða úrslitum. Brasilía lenti í öðru sæti og mætir Úrúgvæ í átta liða en verða án Vinícius sem hefur byrjað alla þrjá leiki Brasilíu og skorað tvö mörk.

Kosta Ríka vann Paragvæ, 2:1, í hinum leik riðislins en bæði lið duttu úr keppni.

Átta liða úrslit í Ameríkubikarnum:

Argentína - Ekvador

Venesúela - Kanada

Úrúgvæ - Brasilía 

Kólumbía - Panama

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert