Messi gæti misst af mikilvægum leik

Lionel Messi sat allan tímann á bekknum gegn Perú.
Lionel Messi sat allan tímann á bekknum gegn Perú. AFP/Hector Vivas

Argentínski knattspyrnusnillingurinn Lionel Messi gæti misst af leik Argentínu gegn Ekvador í átta liða úrslitum Ameríkubikarsins aðfaranótt föstudags. 

Messi hefur verið að glíma við meiðsli undanfarna daga sem hélt honum frá leik Argentínu gegn Perú aðfaranótt sunnudags. 

Argentínskir miðlar greina frá því að meiðslin gætu haldið Messi frá leiknum gegn Ekvador en líklegasr þykir að hann byrji á bekknum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert