Spánverjinn Félix Sánchez hefur verið rekinn sem þjálfari karlaliðs Ekvadors í knattspyrnu eftir tap liðsins fyrir heimsmeisturum Argentínu í átta liða úrslitum Ameríkubikarsins, Copa America, í nótt.
Argentína hafði betur eftir vítaspyrnukeppni en fyrir leik var orðrómur um að Sánchez yrði rekinn ynni Ekvador ekki.
Sánchez vann í akademíu Barcelona áður en hann tók við landsliði Katar og gerði þá að Asíumeisturum 2019.