Kanada mætir meisturunum

Leikmenn Kanada að fagna í nótt.
Leikmenn Kanada að fagna í nótt. AFP/Charly Triballeau

Kanada er komið í undanúrslit í Ameríkubikar karla í fótbolta eftir sigur á Venesúela í vítaspyrnukeppni í Bandaríkjunum í nótt.

Kanada mætir því heimsmeisturunum og ríkjandi Ameríkumeisturum Argentínu í undanúrslitum.

Leikurinn endaði 1:1 eftir venjulegan leiktíma og þá var farið beint í vítaspyrnukeppni. Venesúela byrjaði en bæði lið skoruðu úr fyrstu spyrnunni, klúðruðu annarri, skoruðu úr þriðju, klúðruðu fjórðu og skoruðu úr fimmtu.

Því þurfti að taka sjöttu spyrnuna en þá varði Maxime Crepeau frá Wilker Ángel og Ismaël Koné skoraði sigurmark Kanada í næstu spyrnu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert