Magnað mark Íslendingsins

Ísak Andri Sigurgeirsson.
Ísak Andri Sigurgeirsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ísak Andri Sigurgeirsson skoraði vægast sagt magnað mark í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar að lið hans Norrköping tapaði fyrir Djurgården í dag. 

Djurgården vann leikinn 3:1 en Norrköping er í tómu tjóni í næstneðsta sæti deildarinnar. 

Þrátt fyrir tapið var mark Ísaks ótrúlegt en óvíst er hvort að hann hafi ætlað að skjóta á markið, sem má sjá hér að neðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert