Jafntefli í Íslendingaslagnum mikla

Sævar Atli Magnússon og Kolbeinn Birgir Finsson voru báðir í …
Sævar Atli Magnússon og Kolbeinn Birgir Finsson voru báðir í byrjunarliði Lyngby. Ljósmynd/Lyngby

Nýliðar Sönderjyske og Lygnby gerðu jafntefli, 1:1, í 2. umferð dönsku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu á heimavelli Sönderjyske í dag. 

Fimm Íslendingar byrjuðu leikinn en Tobias Sommer kom Sönderjyske yfir á 14. mínútu. Frederik Gytkjær jafnaði metin fyrir Lyngby sex mínútum síðar og þar við sat. 

Atli Barkarson spilaði allan leikinn fyrir Sönderjyske en Daníel Leó Grétarsson lék 71. mínútu og Kristall Máni Ingason 83. 

Hjá Lygnby lék Kolbeinn Birgir Finnsson allan leikinn en Sævar Atli Magnússon var tekinn út af í hálfleik. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert