Dagur Dan skoraði í sigri (myndskeið)

Dagur Dan Þórhallsson skoraði fyrsta mark Orlando í nótt.
Dagur Dan Þórhallsson skoraði fyrsta mark Orlando í nótt. AFP/Alex Menendez

Dagur Dan Þórhallsson skoraði fyrsta mark Orlando City í 4:1-sigri liðsins gegn CF Montreal í fyrsta bikarleik liðsins í nótt.

Orlando er í riðli með Montrea og San Luis frá Mexíkó en þetta er sameiginleg bikarkeppni efstu deilda Bandaríkjanna, Kanada og Mexíkó.

Dagur kom Orlando yfir eftir aðeins sjö mínútur. Tveir leikmenn Orlando reyndu skot á markið en Degi tókst að koma boltanum yfir línuna.

Orlando var 3:0 yfir í hálfleik og Martin Ojeda skoraði fjórða mark liðsins snemma í seinni hálfleik áður en gestirnir minnkuðu muninn og leikurinn endaði 4:1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert