Ísak lagði upp gegn ensku úrvalsdeildarliði

Ísak Bergmann Jóhannesson lagði upp fyrra mark Düsseldorf.
Ísak Bergmann Jóhannesson lagði upp fyrra mark Düsseldorf. Ljósmynd/Düsseldorf

Landsliðsmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson lagði upp fyrra mark Düsseldorf í sigri á Ipswich, 2:1, í æfingaleik liðanna á heimavelli Ipswich á Englandi í dag. 

Ísak Bergmann lagði upp markið snemma leiks fyrir Þjóðverjann Danny Schmidt. 

Ísak var á láni hjá Düsseldorf á síðustu leiktíð og var liðið afskaplega nálægt því að tryggja sér sæti í þýsku 1. deildinni en tapaði í vítaspyrnukeppni gegn Bochum. 

Düsseldorf keypti Ísak fyrr í sumar frá FC Köbenhavn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka