Neuer birti færslu Cecilíu

Manuel Neuer er hættur með þýska landsliðinu.
Manuel Neuer er hættur með þýska landsliðinu. AFP/Tobias Schwarz

Manuel Neuer, einn besti knattspyrnumarkvörður Evrópu, tilkynnti á dögunum að hann væri hættur að leika með þýska landsliðinu eftir farsælan landsliðsferil.

Neuer heldur áfram að verja mark þýska stórliðsins Bayern München en hann er 38 ára gamall.

Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir birti færslu á Instagram til heiðurs Neuer og sá þýski birti færsluna á sínum reikningi.

Cecilía er sem stendur að láni hjá Inter Mílanó frá Bayern München, þar sem hún hefur verið frá árinu 2022.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert