Brasilíumaðurinn hættir

Paulinho í leik með brasilíska landsliðinu í Rússlandi.
Paulinho í leik með brasilíska landsliðinu í Rússlandi. AFP

Brasilíumaðurinn Paulinho hefur ákveðið að knattspyrnuskóna á hilluna. 

Paulinho lék síðast með Corinthians í heimalandinu en hann var í stóru hlutverki hjá Barcelona tímabilið 2017 til 2018. 

Þá lék hann 49 leiki með liðinu og skoraði níu mörk. 

Hann spilaði með Tottenham frá 2013 til 2015 en fór svo til Kóna. Hann hefur einnig leikið með Al-Ahli í Sádi Arabíu og Red Bull Bragantino og Audax Sao Paulo í heimalandinu. 

Paulinho, sem er orðinn 36 ára gamall, lék þá 56 landsleiki fyrir Brasilíu og skoraði 13 mörk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert