Framherjarnir allt í öllu hjá Svíum

Viktor Gyökeres kemur Svíum yfir.
Viktor Gyökeres kemur Svíum yfir. AFP/Jonathan Nackstrand

Svíþjóð fór léttilega með Eistland, 3:0, í C-deild Þjóðadeildar Evrópu í knattspyrnu karla í Solna í Svíþjóð í kvöld. 

Svíar eru með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leikina. Slóvakía og Aserbaídsjan eru einnig í riðlinum. 

Framherjinn Viktor Gyökeres skoraði fyrsta og þriðja mark Svía en annað markið skoraði Alexander Isak. 

Alexander Isak fagnar marki sínu.
Alexander Isak fagnar marki sínu. AFP/Jonathan Nackstrand
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert