Skoraði sigurmarkið í sterkum sigri

Hlín Eiríksdóttir í leik með íslenska landsliðinu.
Hlín Eiríksdóttir í leik með íslenska landsliðinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Landsliðskonan Hlín Eiríksdóttir skoraði sigurmarkið í útisigri Kristianstad á Hammarby, 2:1, í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 

Kristianstad er í fjórða sæti deildarinnar með 33 stig en Hammarby er sæti ofar með 42 stig. 

Hammarby komst snemma yfir en Kristianstad jafnaði í fyrri hálfleik, 1:1. Sigurmark Hlínar kom síðan á 79. mínútu leiksins. 

Hlín lék allan leikinn fyrir Kristanstad líkt og Katla Tryggvadóttir en Guðný Árnadóttir fór af velli undir lok leiks. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert