Dani Olmo verður ekki með Evrópumeisturum Spánverja í kvöld þegar þeir mæta Sviss á útivelli í Þjóðadeild karla í fótbolta.
Olmo meiddist í leik Spánverja gegn Serbum í Belgrad á fimmtudaginn, þegar liðin gerðu markalaust jafntefli. Hann er farinn heim til Barcelona, samkvæmt spænska knattspyrnusambandinu.
Ekki er talið að um alvarleg meiðsli sé að ræða.
Danmörk og Serbía mætast í hinum leik riðilsins í dag en Danir unnu Sviss 2:0 á fimmtudag.