Selfyssingurinn skoraði sitt fyrsta mark

Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir skoraði sitt fyrsta mark fyrir Örebro.
Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir skoraði sitt fyrsta mark fyrir Örebro. mbl.is/Óttar Geirsson

Selfyssingurinn Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir skoraði sitt fyrsta mark fyrir sænska liðið Örebro er það vann öruggan útisigur á Mallbacken, 4:1, og tryggði sér í leiðinni sæti í 16-liða úrslitum sænska bikarsins í dag.

Áslaug var í byrjunarliði Örebro eins og Katla María Þórðardóttir. Hún skoraði fjórða mark liðsins á 69. mínútu og fór af velli sjö mínútum síðar.

Katla nældi sér í gult spjald á 39. mínútu og fór af velli á 58. mínútu.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert