Landsliðsmaður í lífshættu eftir slys

Fahad Al-Muwallad er í lífshættu á sjúkrahúsi í Dubai.
Fahad Al-Muwallad er í lífshættu á sjúkrahúsi í Dubai. AFP/Haitham al-Shukairi

Knattspyrnumaðurinn Fahad Al-Muwallad, landsliðsmaður Sádi-Arabíu, er í lífshættu á sjúkrahúsi í Dubai eftir slys á hóteli sem hann gisti á þar í borg.

Al-Muwallad gisti eina nótt á hótelinu á leið sinni aftur til félagsliðsins Al-Shabab í heimalandinu eftir landsliðsverkefni í Kína.

Leikmaðurinn, sem er 29 ára gamall, var einn í herbergi sínu þegar hann féll niður svalir á annarri hæð hótelsins og lenti afar illa. Var hann fluttur á gjörgæslu á nærliggjandi sjúkrahúsi.

Hann lék m.a. með Sádi-Arabíu á HM í Rússlandi 2018.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert