Meistararnir enn með fullt hús

Ousmane Dembélé skoraði tvö.
Ousmane Dembélé skoraði tvö. AFP/Geoffroy Hasselt

Frakklandsmeistarar París SG eru með fullt hús stiga eftir fjóra leiki í frönsku 1. deildinni í fótbolta. Liðið vann heimasigur á Brest, 3:1, í kvöld.

Romain Del Castillo kom Brest óvænt yfir á 29. mínútu en Ousmane Dembélé jafnaði á 42. mínútu og var staðan í hálfleik 1:1.

Fabián Ruiz kom Parísarliðinu yfir á 73. mínútu og aðeins mínútu síðar gerði Dembélé sitt annað mark og þriðja mark heimamanna.

Önnur úrslit:
Marseille 2:0 Nice
Auxerre 0:3 Mónakó

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert