Óvænt úrslit hjá toppliðinu

Álvaro Morata og félgar unnu stórsigur á Venezia.
Álvaro Morata og félgar unnu stórsigur á Venezia. AFP/Gabriel Bouys

AC Milan hafði betur gegn Venezia, 4:0, í ítölsku A-deildinni í fótbolta í kvöld.

Theo Hernández, Youssouf Fofana, Christian Pulisic og Tammy Abraham gerðu mörk Milan. Mikael Egill Ellertsson var allan tímann á bekknum hjá Venezia og Bjarki Steinn Bjarkason er frá keppni vegna meiðsla. 

Juventus tapaði stigum gegn Empoli.
Juventus tapaði stigum gegn Empoli. AFP/Isabella Bonotto

Topplið Juventus tapaði óvænt stigum á útivelli gegn Empoli. Uruðu lokatölur 0:0. Juventus er enn í toppsætinu með átta stig.

Þá gerðu Como og Bologna 2:2-jafntefli í Como. Patrick Cutrone kom Como í 2:0 á 53. mínútu eftir sjálfsmark snemma leiks. Varamennirnir Samuel Junior og Santiago Castro svöruðu fyrir Bologna undir lokin.

Standings provided by Sofascore
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert