Federico Chiesa, nýr leikmaður karlaliðs Liverpool í knattspyrnu, verður í leikmannahópi liðsins í fyrsta sinn á morgun eftir að hann gekk til liðs við félagið frá Juventus undir lok síðasta mánaðar.
Chiesa hefur ekki verið í leikmannahópnum í síðustu tveimur deildarleikjum Liverpool eftir að hann kom en Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, sagði möguleika á því að ítalski kantmaðurinn fái mínútur á morgun.
Liverpool heimsækir þá AC Milan í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu.
„Hann verður í fyrsta sinn í leikmannahópnum á morgun. Ég geri ekki ráð fyrir því að hann byrji leikinn en hann gæti fengið nokkrar mínútur,”“ sagði Slot á fréttamannafundi í dag.