Perisic til Hollands

Ólafur Ingi Skúlason og Ivan Perisic eigast við í einni …
Ólafur Ingi Skúlason og Ivan Perisic eigast við í einni af fjölmörgum viðureignum Íslands og Króatíu. Eggert Jóhannesson

Króatíski kantmaðurinn Ivan Perisic hefur skrifað undir eins árs samning við PSV Eindhoven á frjálsri sölu.

Perisic lék síðast fyrir Hajduk Split í heimalandi sínu en hann hefur átt afar farsælan feril hjá meðal annars Bayern München, Inter og Tottenham auk 136 landsleikja fyrir Króata.

PSV er með fullt hús stiga í efsta sæti hollensku úrvalsdeildarinnar eftir fimm leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert