Terzic orðaður við AC Milan

Edin Terzic ásamt Jude Bellingham
Edin Terzic ásamt Jude Bellingham AFP/Ina Fassbender

Paulo Fonseca, knattspyrnustjóri AC Milan, á að hættu að vera rekinn úr starfi ef illa fer í nágrannaslagnum gegn Inter um helgina. Edin Terzic er orðaður við starfið.

Mikil óánægja ríkir meðal stuðningsmanna AC Milan með stöðu mála hjá stórliðinu en Zlatan Ibrahimovic fékk skammir frá fyrrverandi Milan manninum Zvonomir Boban í beinni útsendingu í sjónvarpi eftir tap Milan gegn Liverpool í Meistaradeild Evrópu í gær.

Edin Terzic, fyrrverandi þjálfari Borussia Dortmund sagður á blaði hjá stjórnendum Mílanóliðsins en hann var á San Siro í gær að fylgjast með leiknum.

Terzic leiddi Dortmund alla leið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á síðasta tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert