Rosengård vann sinn tuttugasta sigur í röð í sænsku úrvalsdeildinni er liðið vann sannfærandi heimasigur á Växjö, 4:0, í kvöld.
Er Rosengård með fullt hús stiga eftir 20 leiki í deildinni og með 14 stiga forskot á Häcken sem er í öðru sæti.
Olivia Schough og Emma Jansson komu Rosengård í 2:0 í fyrri hálfleik og hin japanska Mai Kadowaki gerði tvö mörk í seinni hálfleik.
Guðrún Arnardóttir var á sínum stað í vörn Rosengård og lék allan leikinn.