Fær ævilangt bann

Thibaut Courtois í leiknum í gær.
Thibaut Courtois í leiknum í gær. AFP/Oscar Del Pozo

Stuðningsmaður Atletico Madrid hefur verið dæmdur í ævilangt bann frá Estadio Civitas Metropolitano fyrir að kasta aðskotahlut í Thibaut Courtois, markvörð Real Madrid, í Madrídarslagnum í gær.

Forsvarsmenn Atletico gengu hreint til verks og hafa þegar útilokað manninn frá leikvangnum en unnið er að því að bera kennsl á fleiri sem tóku þátt í að grýta belgíska markvörðinn eftir mark Real Madrid í leiknum.

Atletico vill einnig banna fólki að bera grímur eða hylja andlit sitt á leikjum í framtíðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert