Þjálfarinn fékk reisupassann

María Catharina Ólafsdóttir Gros fær nýjan þjálfara hjá Linköping.
María Catharina Ólafsdóttir Gros fær nýjan þjálfara hjá Linköping. Ljósmynd/Fortuna Sittard

Sænska knattspyrnufélagið Linköping hefur vikið Rafael Roldán úr starfi sem þjálfari kvennaliðs félagsins, en hann tók við liðinu fyrir tímabilið.   

Linköping endaði í þriðja sæti deildarinnar á síðustu leiktíð en er nú í áttunda sæti með 25 stig eftir 21 leik.

María Catharina Ólafsdóttir Gros er leikmaður Linköping og fær brátt nýjan þjálfara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert