Spænski knattspyrnumaðurinn Mikel Merino kann vel við lífið hjá Arsenal á Englandi en hann kom til félagsins í sumar frá Real Sociedad í heimalandinu.
Hann er sérstaklega ánægður að æfa og spila undir stjórn landa síns Mikel Arteta, þrátt fyrir að stjórinn sé ansi kröfuharður.
„Ég ætla ekki að fara í smáatriði en það er engin hvíld á æfingum. Það eru alltaf nýjar áskoranir og þannig verður þú betri, bæði andlega- og líkamlega.
Ég hef aldrei upplifað annað eins á ferlinum, en ég er að læra hratt og vel,“ sagði miðjumaðurinn við The Guardian.