Henry hafði ekki mikla trú á Saka

Bukayo Saka og Thierry Henry.
Bukayo Saka og Thierry Henry. Ljósmynd/Samsett

Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Thierry Henry, goðsögn hjá Arsenal, viðurkennir að hafa ekki haft trú á því að Bukayo Saka, kantmaður Arsenal, yrði jafn góður leikmaður og raunin er orðin.

„Ég sá hann í akademíunni og ef ég á að vera alveg hreinskilinn hafði ég ekki trú á því að hann yrði svona góður,“ sagði Henry er hann var við störf sem sparkspekingur hjá CBS Sports.

„Hann er auðmjúkur og vinnusamur. Þegar þú leggur svona hart að þér og ert með góða fjölskyldu sem styður við bakið á þér er það mjög mikilvægt. Hann gerir liðsfélögum sínum auðveldara fyrir,“ bætti Frakkinn við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert