Landsliðskonan Sædís Rún Heiðarsdóttir var á meðal markaskorara Vålerenga er liðið sigraði Åsane, 3:1, á útivelli í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.
Sædís lék allan leikinn með Vålerenga og skoraði þriðja mark liðsins á 72. mínútu. Er um annað markið hennar fyrir liðið að ræða síðan hún gekk í raðir norska félagsins í mars.
Vålerenga er með mikla yfirburði í deildinni í ár, en liðið er með 60 stig eftir 22 leiki, 14 stigum á undan Brann í öðru sæti.