Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði til margra ára, er komin á blað hjá Al-Qadisiyah í sádiarabíska fótboltanum.
Miðjukonan kom liði sínu yfir gegn Al-Nassr á heimavelli á 4. mínútu með marki úr víti. Því miður fyrir hana og samherja hennar mátti liðið þola tap, 2:1.
Al-Qadisiyah er án stiga eftir tvo leiki í sádiarabísku deildinni. Sara tók einnig víti í fyrsta leik liðsins en þá brást henni bogalistin.