Skýr skilaboð Mbappés

Kylian Mbappé er skærasta stjarna franska landsliðsins.
Kylian Mbappé er skærasta stjarna franska landsliðsins. AFP/Sammer Al-Doumy

Kylian Mbappé ætlar sér bara að spila allra mikilvægustu leiki franska landsliðsins til þess að forðast meiðsli. 

Þetta kemur fram í spænsku miðlum en samkvæmt þeim tjáði hann franska knattspyrnusambandinu að hann vildi ekki taka þátt í minni verkefnum. 

Mbappé, sem er fyrirliði landsliðsins, er hræddur við að meiðast og setur stefnuna á að vinna gullboltann árið 2025. 

Mbappé er ekki með franska landsliðinu í yfirstandandi verkefni en hann náði sér ekki á strik á Evrópumótinu í sumar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert