Glæsileg innkoma Guðrúnar

Guðrún Arnardóttir skoraði.
Guðrún Arnardóttir skoraði. Kristinn Magnússon

Svíþjóðarmeistarar Rosengård tryggðu sér í kvöld sæti í 16-liða úrslitum sænska bikarsins í fótbolta með sigri á Helsingborg á útivelli, 4:0.

Guðrún Arnardóttir byrjaði á bekknum hjá Rosengård en lék seinni hálfleikinn. Hún skoraði fjórða mark liðsins á 65. mínútu.

Rosengård hefur átt fullkomið tímabil til þessa en liðið er með fullt hús stiga eftir 23 umferðir í deildinni og hefur þegar tryggt sér sænska meistaratitilinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert