Tap í öðrum leik Pochettinos

Mauricio Pochettino á hliðarlínunni í Mexíkó í nótt.
Mauricio Pochettino á hliðarlínunni í Mexíkó í nótt. AFP/Ulises Ruiz

Öðrum leik bandaríska karlalandsliðsins í knattspyrnu með Argentínumanninn Mauricio Pochettino við stjórnvölinn lauk með tapi fyrir nágrönnunum í Mexíkó, 2:0, í vináttulandsleik í nótt.

Pochettino stýrði sínum fyrsta vináttuleik um helgina þar sem Bandaríkin lögðu Panama að velli, 2:0, í Austin í Texasríki.

Ekki fór jafn vel í Zapopan í Mexíkó í nótt þar sem Raúl Jiménez og César Huerta skoruðu mörk heimamanna.

HM 2026 fer fram í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada og er undirbúningurinn liðanna fyrir mótið þegar hafinn þar sem þau þurfa ekki að fara í gegnum undankeppni sem gestgjafar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert