Rifta samningi enska leikmannsins

Ryan Kent í leik með Rangers.
Ryan Kent í leik með Rangers. AFP

Tyrkneska knattspyrnufélagið Fenerbahce hefur ákveðið að rifta samningi enska kantmannsins Ryans Kent. 

Kent, sem er 27 ára gamall, gekk til liðs við Fenerbahce í fyrrasumar en hann ólst upp hjá Liverpool. 

Kent gerði garðinn frægan með Rangers á árunum 2019 til 2023 en hann mun fljótlega vilja gleyma tíma sínum í Tyrklandi. 

José Mourinho, stjóri Fenerbahce, vildi ólmur losna við leikmanninn í sumar og varð loks að ósk sinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert