Wayne Rooney, knattspyrnustjóri enska liðsins Plymouth, hefur verið úrskurðaður í eins leiks bann eftir að hann fékk rautt spjald í leik í B-deildinni fyrr í mánuðinum.
Enska knattspyrnusambandið kærði Rooney fyrir hátterni sitt þegar Blackburn Rovers jafnaði metin í 1:1, en Plymouth vann svo leikinn 2:1.
Hann hagaði sér þá með óviðeigandi hætti og notaði móðgandi orð í garð dómara leiksins fyrir og eftir að honum var sýnt rautt spjald.
Auk þess sneri Rooney aftur á völlinn að leik loknum þrátt fyrir að hafa fengið reisupassann, sem enska sambandið taldi óviðeigandi.
Hann verður því ekki á hliðarlínunni þegar Plymouth heimsækir Cardiff City í B-deildinni á morgun.
Guðlaugur Victor Pálsson er leikmaður Plymouth en hefur lítið spilað á tímabilinu.