Diljá skoraði í stórsigri

Diljá Ýr Zomers.
Diljá Ýr Zomers. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsliðskonan Diljá Ýr Zomers skoraði fyrir Leuven í 5:0-sigri liðsins gegn Gent í belgísku A-deildinni í kvöld.  

Diljá skoraði fjórða mark leiksins á 51. mínútu. Þetta var þriðja mark Diljár í deildinni en hún var markahæst í deildinni á síðustu leiktíð með 23 mörk.  

Leuven er á toppi deildarinnar eftir átta leiki með 19 stig.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert