Nígeríski framhjerinn Victor Boniface lenti í hræðilegu bílslysi í gær eftir að hafa skorað sigurmark Bayer Leverkusen í efstu deild Þýskalands í knattspyrnu.
Betur fór en á horfðist en Boniface varð aðeins fyrir minniháttar meiðslum á hendi. Nígeríumaðurinn gaf út á samfélagsmiðlum að það væri í lagi með hann og þakkaði guði fyrir að ekki hafi farið verr.
Bayer Leverkusen hafði betur gegn Eintracht Frankfurt, 2:1, í gær og skoraði Boniface sigurmark liðsins á 71. mínútu.
Boniface hefur byrjað tímabilið afar vel með Leverkusen og er með fimm mörk í sex byrjunarliðsleikjum fyrir félagið í deildinni.
🚨🚨| Victor Boniface was involved in a terrifying car accident following Bayer Leverkusen's Bundesliga victory on Saturday.
— CentreGoals. (@centregoals) October 20, 2024
He escaped with only minor injuries after the crash, which left his car wrecked.
According to Bild, Boniface is fine, having only sustained two minor… pic.twitter.com/Q3EDtSxRPi