Íslendingarnir góðir í Noregi

Benedikt Gunnar Óskarsson, Sigvaldi Björn Guðjónsson og Sveinn Jóhannsson.
Benedikt Gunnar Óskarsson, Sigvaldi Björn Guðjónsson og Sveinn Jóhannsson. Ljósmynd/Jon Forberg

Kolstad vann öruggan sigur gegn Bækkelaget, 35:21, í norsku úrvalsdeild karla í handbolta í dag.  

Sveinn Jóhannsson skoraði fjögur mörk fyrir Kolstad. Samherjar hans Sigvaldi Björn Guðjónsson og Benedikt Gunnar Óskarsson skoruðu tvö mörk hvor.  

Kolstad situr í öðru sæti deildarinnar með 12 stig, tveimur stigum á eftir Elverum á toppnum.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert