Brotist inn hjá fótboltaparinu

Alisha Lehmann og Douglas Luiz eru bæði samningsbundin Juventus á …
Alisha Lehmann og Douglas Luiz eru bæði samningsbundin Juventus á Ítalíu. Ljósmynd/@alishalehmann7

Brotist var inn á heimili fótboltaparsins Douglas Luiz og Alisha Lehmann, sem eru bæði á mála hjá Juventus, um nýliðna helgi í Torínó. 

Parið gekk til liðs við Juventus í sumar en þetta er ekki í fyrsta sinn sem brotist er inn til leikmanna Juventus. 

Ítalski miðilinn Gazzetta dello Sport segir frá en þar kemur fram að ellefu úrum í eigu Luiz hafi verið stolið ásamt hálsmennum Lehmann. 

Þá er talið að þjófarnir hafi komist í burtu með ránsfeng að andvirði 64 milljóna íslenskra króna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert