Stórkostlegt mark Jóhanns Bergs (myndskeið)

Jóhann Berg Guðmundsson í leik með íslenska landsliðinu gegn því …
Jóhann Berg Guðmundsson í leik með íslenska landsliðinu gegn því enska í sumar. Ljósmynd/Alex Nicodim

Jóhann Berg skoraði stórkostlegt jöfnunarmark fyrir Al-Orobah í 3:2 endurkomusigri liðsins gegn Al-Ettifaq í efstu deild karla í knattspyrnu í Sádi-Arabíu í kvöld.  

Mark Jóhanns kom á 74. mínútu en aðeins tíu mínútum síðar skoraði Spánverjinn Cristian Tello sigurmark liðsins.  

Hægt er að sjá glæsilega mark Jóhanns hér fyrir neðan.  

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert