Allt í blóma hjá liðsfélögum Alberts

Albert Guðmundsson fagnar marki ásamt liðsfélögum.
Albert Guðmundsson fagnar marki ásamt liðsfélögum. Ljósmynd/@acffiorentina

Fiorentina fór afar illa með Roma, 5:1, í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu karla í gærkvöldi. 

Fioretina er komið í fjórða sæti deildarinnar með 16 stig en liðið hefur nú unnið fimm síðustu leiki sína í öllum keppnum eftir brösuglega byrjun. 

Albert Guðmundsson meiddist í síðasta deildarleik og verður ekkert með næstu vikurnar, en hann kom afar sterkur inn í byrjun sigurgöngu Fiorentina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert