Átta marka jafntefli í stórslag

Hinn 19 ára gamli Kenan Yildiz skoraði tvö mörk fyrir …
Hinn 19 ára gamli Kenan Yildiz skoraði tvö mörk fyrir Juventus. AFP/Gabriel Bouys

Stórliðin Inter Mílanó og Juventus gerðu jafntefli, 4:4, í ótrúlegum leik í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu karla í Mílanó í gærkvöldi.

Staðan var þegar orðin 3:2 fyrir Inter í hálfleik og heimamenn bættu svo við fjórða markinu snemma í síðari hálfleik.

Gestirnir frá Tórínó gáfust hins vegar ekki upp þar sem táningurinn Kenan Yildiz skoraði tvívegis áður en yfir lauk og jafnaði þannig metin fyrir Juventus.

Dusan Vlahovic og Timothy Weah skoruðu einnig fyrir Juventus, sem hafði aðeins fengið á sig eitt mark í átta deildarleikjum fyrir leik gærkvöldsins.

Hjá Inter skoraði Piotr Zielinski tvívegis auk þess sem Henrikh Mkhitaryan og Denzel Dumfries komust á blað.

Inter er í öðru sæti deildarinnar með 18 stig og Juventus er sæti neðar með 17 stig. Napólí er á toppnum með 22 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert