Malmö tryggði sér í kvöld sænska meistaratitilinn í fótbolta í 22. skipti með sigri á Gautaborg, 2:1, á heimavelli.
Malmö er nú með átta stiga forskot á Hammarby, þegar tvær umferðir eru eftir. Daníel Tristan Guðjohnsen er leikmaður Malmö, en hann var ekki í leikmannahópi liðsins í dag.
Kolbeinn Þórðarson lék fyrstu 73 mínúturnar með Gautaborg, sem er í 12. sæti með 30 stig.