Mourinho meiddist á æfingu (myndskeið)

José Mourinho.
José Mourinho. AFP/Ozan Kose

José Mourinho, knattspyrnustjóri Fenerbahce í Tyrklandi, meiddist þegar hann stýrði æfingu hjá liðinu í gær. Leikmaðurinn Ismail Yüksek keyrði Portúgalann niður er Yüksek var að elta bolta á æfingunni.

Mourinho féll í grasið og meiddist á hné en í samtali við tyrkneska miðilinn NTV fullvissaði hann stuðningsmenn Fenerbahce um að meiðslin væru ekki alvarleg.

Sló Mourinho, sem er 61 árs, á létta strengi á Instagram-aðgangi sínum þar sem hann birti myndskeið af atvikinu og skrifaði:

„Lexía fyrir unga þjálfara: Aldrei klæðast sömu litum og leikmennirnir. Þið gætuð fengið sendingu... eða högg aftan frá.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert