Harry Kane fór á kostum í 3:0 sigri Bayern München gegn Union Berlin í þýsku 1. deildinni í fótbolta í dag.
Kane kom Bæjurum yfir á 15. Mínútu með marki af vítapunktinum. Hann lagði síðan upp annað mark liðsins á Kingsley Coman á 43. mínútu.
Enski framherjinn skoraði síðan þriðja mark Bayern á 51. mínútu. Lokaniðurstöður 3:0-sigur Bayern.
Úrslitin þýða að Bayern er áfram á toppi deildarinnar með 23 stig. Union situr í sjötta sæti með 15 stig.