Óttar Magnús Karlsson skoraði eina mark Spal í 4:1-tapi liðsins gegn Ternana í ítölsku C-deildinni í dag.
Óttar kom Spal yfir á 44. mínútu. Á sjöttu mínútu í uppbótartíma í fyrri hálfleik fékk Matteo Bruscagin, liðsfélagi Óttars, sitt annað gula spjald og þar með rautt.
Á 59. mínútu var Óttar tekinn af velli í stöðunni 1:0. Heimamenn skoruðu í kjölfarið fjögur mörk á tuttugu mínútna kafla og unnu að lokum öruggan 4:1-sigur.
Spal hefur byrjaði mótið illa og situr í næstsíðasta sæti deildarinnar með átta stig eftir 13 leiki.