Þrenna Díaz skaut Liverpool á toppinn

Luis Díaz fagnar þriðja marki sínu í kvöld.
Luis Díaz fagnar þriðja marki sínu í kvöld. AFP/Paul Ellis

Liverpool tók á móti Leverkusen í fjórðu umferð Meistaradeildar Evrópu í kvöld en spilað var á Anfield vellinum í Liverpool. Liðin buðu upp á kaflaskiptan leik sem á endanum endaði með sannfærandi sigri Liverpool, 4:0.

Eftir leikinn er Liverpool á toppi Meistaradeildarinnar með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir en Leverkusen er með sjö stig í 11. sæti.

Það er ekki hægt að segja að fyrri hálfleikurinn hafi verið leikur margra færa, það var hann svo sannarlega ekki.

Það var ærin ástæða fyrir liðsmenn Liverpool að fagna í …
Það var ærin ástæða fyrir liðsmenn Liverpool að fagna í kvöld. AFP/Paul Ellis

Hættulegasta færi hálfleiksins kom á annarri mínútu uppbótartíma hans þegar Curtis Jones skipti boltanum yfir til vinstri á Cody Gakpo. Hollendingurinn kom með boltann inn á völlinn og lét vaða að marki en skotið fór beint á Lucas Hradecky markvörð Leverkusen.

Allt annað var að sjá til Liverpool liðsins í seinni hálfleiknum og ljóst að Arne Slot hafi látið einhver vel valin orð falla inni í búningsklefa í hálfleik.

Arne Slot er heldur betur að fara vel af stað …
Arne Slot er heldur betur að fara vel af stað sem knattspyrnustjóri Liverpool. AFP/Paul Ellis

Á 61. mínútu kom fyrsta mark leiksins þegar að Curtis Jones átti stórkostlega stungusendingu innfyrir vörn gestanna og fann þar hlaupið hjá Luis Díaz. Kólumbíumaðurinn tók vel á móti boltanum og vippaði boltanum snyrtilega yfir Hradecky í marki gestanna.

Tveimur mínútum síðar skoraði Cody Gakpo annað mark heimamanna. Þá átti Mohamed Salah frábæra fyrirgjöf sem lenti á kollinum á Gakpo. Markið var upphaflega dæmt af vegna rangstæðu en eftir að VAR herbergið skoðaði málið þá sást það bersýnilega að Hollendingurinn var ekki rangstæður og markið fékk réttilega að standa.

Cody Gakpo fagnar marki sínu í kvöld.
Cody Gakpo fagnar marki sínu í kvöld. AFP/Paul Ellis

Á 83. mínútu kláraði Luis Díaz leikinn endanlega þegar hann skoraði þriðja mark Liverpool. Mohamed Salah átti þá fyrirgjöf frá hægri sem fór beint á Díaz. Díaz gerði vel í að stíga út Jonas Hofmann áður en hann tók við boltanum og lagði hann framhjá varnarlausum Hradecky í marki Leverkusen.

Á annari mínútu uppbótartíma innsiglaði Luis Díaz þrennu sína í kvöld. Darwin Nunez átti þá skot að marki sem fór af varnarmanni og beint fyrir fæturnar á Díaz sem kláraði færi sitt vel af stuttu færi og kórónaði hann þar frábæran seinni hálfleik sinn og Liverpool liðsins.

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Liverpool 4:0 Bayer Leverkusen opna loka
90. mín. Andrew Robertson (Liverpool) á skot yfir Gravenberch á fyrirgjöf sem endar hjá Robertson á vítapunktinum en hann er ekki í jafnvægi þegar hann lætur skotið ríða af og það fer hátt yfir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert