Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar sneri nýverið aftur á völlinn eftir rétt rúmlega árs fjarveru vegna alvarlegra hnémeiðsla. Í aðeins öðrum leik sínum eftir endurkomuna í gær fór hann hins vegar meiddur af velli.
Neymar kom inn á sem varamaður á 58. mínútu í leik félagsliðs síns Al Hilal frá Sádi-Arabíu gegn Esteghlal frá Íran í Meistaradeild Asíu í gær. Skömmu fyrir leikslok gaf hann til kynna að það þyrfti að skipta honum aftur út af.
Haltraði Neymar afar svekktur af velli og fleygði legghlífum sínum og takkaskóm í jörðina, en útlit er fyrir að hann hafi meiðst aftan í læri. Gengst hann undir frekari skoðanir í vikunni.
Neymar injured again? Football is so cruel 💔 pic.twitter.com/vO8cQQKY21
— Jacky (@MCFC_Jacky) November 4, 2024