Andri Lucas Guðjohnsen og samherjar hans hjá Gent frá Belgíu höfðu betur gegn Omonia frá Kýpur í 3. umferð í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta á heimavelli sínum í kvöld, 1:0.
Landsliðsframherjinn var í byrjunarliði Gent og lék fyrstu 75 mínúturnar. Gent er í 14. sæti deildarinnar eins og staðan er þegar fréttin er skrifuð. Er belgíska liðið með sex stig eins og Víkingur og eru bæði lið með núll í markatölu.
Omonia er með þrjú stig eftir leikina þrjá, en þau fékk liðið með því að sigra Víking á heimavelli í fyrstu umferð.
Önnur úrslit:
Legia 4:0 Dinamo Minsk
HJK 0:2 Olimpija
Shamrock Rovers 2:1 TNS
Petrocub 0:3 Rapid
Pafos 1:0 Astana
TSC 4:1 Lugano