Sauma þurfti tíu spor í andlit Pau Cubarsí, 17 ára varnarmanns Barcelona, eftir að hann fékk takkana á mótherja í andlitið í 5:2-sigri á Rauðu stjörnunni í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í gærkvöldi.
Cubarsí skallaði boltann í burtu eftir hornspyrnu Rauðu stjörnunnar en um leið fór Uros Spajic með takkana í andlit varnarmannsins unga.
Hann lá alblóðugur eftir með opið sár og þurfti því að fara af velli þar sem Cubarsí var saumaður saman.
Hansi Flick, knattspyrnustjóri Barcelona, sagði á fréttamannafundi eftir leik að Cubarsí væri í lagi en að sauma hafi þurft tíu spor í andlit hans.
Félagið birti síðar um kvöldið mynd af Cubarsí þar sem stóð: „Ég er í lagi.“