Dramatík hjá Glódísi

Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur jöfnuðu á síðustu stundu.
Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur jöfnuðu á síðustu stundu. Ljósmynd/Alex Nicodim

Bayern München og Freiburg skildu jöfn, 2:2, í efstu deild þýska fótboltans í Freiburg í kvöld. Cora Zicai og Lisa Karl komu Freiburg óvænt í 2:0, sem voru hálfleikstölur.

Bayern svaraði á 50. mínútu er Alara Sehitler skoraði. Stefndi í 2:1-sigur Freiburg þegar varamaðurinn Weronika Zawistowska jafnaði fyrir Bayern í uppbótartíma eftir stoðsendingu frá Glódísi Perlu Viggósdóttur. 

Glódís Perla fyrirliði Bayern lék allan leikinn með liðinu að vanda. Bayern er í toppsætinu með 20 stig. Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur í Wolfsburg fara upp í 21 stig og í toppsætið með sigri á Hoffenheim á morgun.

Frankfurt og Leverkusen eru með 17 stig og geta jafnað Bayern með sigri í næsta leik. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir leikur með Leverkusen, að láni frá Bayern.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert