Neyðarleg mistök hjá þýska sambandinu

Julian Nagelsmann landsliðsþjálfari valdi ekki Dario Sits í leikmannahópinn sinn …
Julian Nagelsmann landsliðsþjálfari valdi ekki Dario Sits í leikmannahópinn sinn þó útlit hafi verið fyrir það á heimasíðu þýska knattspyrnusambandsins. AFP/Alexandra Beier

Þýska knattspyrnusambandið gerði sig sekt um neyðarleg mistök þegar landsliðshópur karla var  tilkynntur fyrir komandi landsleikjaglugga sem fer í hönd um miðjan mánuðinn.

Á heimasíðu sambandsins var að finna leikmannahópinn en eitt nafn stakk í stúf: Dario Sits. Sá leikur með Helmond Sport í hollensku B-deildinni að láni frá Parma á Ítalíu.

Nógu óvænt hefði það verið að tvítugur sóknarmaður sem spilar í næstefstu deild í Hollandi kæmist í ógnarsterkan þýskan landsliðshóp en það sem meira er, hann er ekki frá Þýskalandi.

Eftir því sem næst verður komist á Sits engar ættir að rekja þangað og er auk þess landsliðsmaður annarrar þjóðar, Lettlands, þar sem hann fæddist og ólst upp. Hefur Sits leikið tvo A-landsleiki og skorað eitt mark og er í landsliðshópnum fyrir verkefni Letta í næsta landsleikjaglugga.

Starfsmenn þýska sambandsins voru fljótir að leiðrétta villuna og strikuðu nafn Sits út. Samkvæmt AP fréttaveitunni bar sambandið við tæknilegum örðugleikum; villu í leikmannagagnagrunni þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert